Innherjar

Þá fer að styttast í inniflugið fyrir veturinn 2019-2020, sem fyrr eru það Innherjar(deild í FMS) sem mun halda utan um inniflugið og er þetta sjöundi veturinn okkar. Við fyrstu talningu þá eru 27 sunnudagar sem standa til boða. Sem fyrr er tíminn frá 18:30-19:30 á sunnudögum, gestir og gangandi eru að sjálfsögðu velkomnir á svæðið til að fylgjast með.

Vinsamlegast hafið samband við gjaldkera FMS ÁÐUR en þið mætið á svæðið til að ganga frá greiðslu gjaldsins. Félagar í FMS þurfa einnig að greiða gjaldið ef þeir vilja taka þátt.

Kostar þetta 15.000 krónur á mann fyrir veturinn!

Hægt er að millifæra beint inn á reikning FMS en vinsamlegast sendið þá tölvupóst á innherjar hjá modelflug.net með útskýringu á greiðslunni.

Reikningur: 542-15-120639
Kennitala: 530194-2139
Netfang: innherjar hjá modelflug.net

2019
Október > 4, 11, 18, 25
Nóvember > 1, 8, 15, 22, 29
Desember > 6, 13, 20

2020
Janúar > 10, 17, 24, 31
Febrúar > 7, 14, 21, 28
Mars > 6, 13, 20
Apríl > 3, 10, 17, 24