Aðalfundur FMS þann 19. apríl 2022

Aðalfundur Flugmódelfélags Suðurnesja verður haldinn þann 19. apríl nk. kl. 20:00 í Virkjun, Ásbrú. Sem fyrr er um pappírslausan aðalfund að ræða og verða fundargögn send í tölvupósti á félagsmenn þegar nær dregur fundi. Ekki liggja fyrir tillögur um lagabreytingar á þessum fundi.

Dagskrá aðalfundar

  1. Kosning fundarstjóra
  2. Skýrsla formanns um störf félagsins á liðnu starfsári
  3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
  4. Fjárhagsáætlun og ákvörðun félagsgjalda
  5. Skýrslur nefnda
  6. Kosning stjórnar (formaður og meðstjórnandi)
  7. Tillögur og lagabreytingar
  8. Önnur mál

Í ár þarf að kjósa um formann og meðstjórnanda og eru áhugasamir hvattir til að gefa kost á sér og geta haft samband við stjórn fyrir aðalfundinn eða gefið kost á sér á fundinum.

Kveðja stjórn Flugmódelfélags Suðurnesja