Inniflugið að hefjast á nýjan leik


Þá fer að styttast í inniflugið fyrir veturinn 2012-2013, sem fyrr eru það Innherjar(deild í FMS) sem mun halda utan um inniflugið og er þetta fjórði veturinn okkar. Við fyrstu talningu þá eru 27 sunnudagar sem standa til boða. Sem fyrr er tí­minn frá 18:30-19:30 á sunnudögum, gestir og gangandi eru að sjálfsögðu velkomnir á svæðið til að fylgjast með.

Vinsamlegast hafið samband við gjaldkera FMS áður en þið mætið á svæðið til að ganga frá greiðslu gjaldsins. ENGAR UNDANTEKNINGAR!
Þetta er dýrt húsnæði og við þurfum að standa skil á okkar hlut!

Kostar þetta 10.000 krónur á mann fyrir veturinn, engin verðbólga og vesen hér!

Hægt er að millifæra beint inn á reikning FMS en vinsamlegast sendið tölvupóst á innherjar hjá modelflug.net með útskýringu á greiðslunni..

Reikningur: 542-15-120639
Kennitala: 530194-2139
Netfang: innherjar hjá modelflug.net

2012
Október > 7, 14, 21, 28
Nóvember > 4, 11, 18, 25
Desember > 2, 9, 16

2013
Janúar > 6, 13, 20, 27
Febrúar > 3, 10, 17, 24
Mars > 3, 10, 17, 24
Apríl > 7, 14, 21, 28