Frístundadagsflugkoma að baki


Fyrstu menn voru mættir upp úr 11 að njóta veðursins og var stanslaust fjör til kl.20:30 þegar síðustu menn yfirgáfu svæðið. Hátt í 40 módel voru á svæðinu þegar mest var og sennilega um 20 módelmenn. Þrátt fyrir góðan vilja þá náði ég ekki að taka myndir af öllum módelunum en einhverjum samt.

Langar að þakka þeim fjölmörgu sem lögðu leið sína út á Arnarvöll fyrir frábæran dag og vonandi verða þeir sem flestir í sumar. Hvet menn til að kynna sér atburði sumarsins.

Hægt er að sjá fleiri myndir í myndasafninu.

Frístundadagur Reykjanesbæjar – Flugkoma

Í tilefni af Frístundadegi Reykjanesbæjar verður Flugmódelfélag Suðurnesja með flugkomu á Arnarvelli laugardaginn 25.apríl frá kl.13-17.

Það stefnir í rjómablíðu á morgun og þrátt fyrir að skipulagðri dagskrá ljúki kl.17 þá verður eflaust flogið langt fram á kvöld.

Félagsmenn og aðrir módelmenn eru hvattir til að fjölmenna og skemmta sér á góðum flugdegi.