Styttist í afmælisflugkomuna

Nú eru bara tveir dagar til stefnu þangað til 20 ára afmælisflugkoma FMS brestur á með látum. Húllumhæið byrjar kl.10:00 laugardaginn 2.júní nk. og stendur yfir til kl.16 um daginn. Klukkan 20 um kvöldið verður svo afmæliskvöldmatur á Hótel Keflavík þar sem Ali og co hjálpa okkur að samgleðjast yfir 20 flognum árum.

Að venju verður nóg af veitingum í boði Flugmódelfélagsins og velunnara þess, Ölgerðarinnar og Merrild, út á Arnarvelli yfir daginn.

Hægt er að lesa nánar um flugkomuna, upplýsingar fyrir flugmenn og upplýsingar um afmæliskvöldmatinn á Hótel Keflavík.