Lendingarkeppni Flugmódelfélags Suðurnesja var haldin á Arnarvelli í kvöld. Fimm fræknir
kappar mættu galvaskir til leiks í einni mögnuðust hliðarvindslendingarkeppni sem sögur fara af! Eitthvað af pörtum datt af vélunum í hörðustu ákomunum en allar luku þær þó keppni með smá viðhaldi.
Okkur langar að þakka þeim sem tóku þátt og óska sigurvegurunum til hamingju með sigurinn. Þá má til gamans geta þess að þetta er væntanleag í síðasta skipti sem keppnin fer fram á malbikinu en grasið ætti að vera orðið keppnishæft á næsta ári.