Nóg að gera á Arnarvelli

Já síðustu misseri hefur verið nóg að gera á Arnarvelli, mikið flogið, jafnvel langt fram á nætur og menn skemmt sér prýðilega. Félagsmenn hafa líka verið duglegir að koma með stærri vélarnar sínar út á völl og hefur það skapað skemmtilega stemmningu.

Einnig hefur verið nóg að gera í nýliðakennslu en í augnablikinu eru fjórir aðilar að ganga í gegnum hana og tveir detta inn á næstu dögum.

Bendum á myndasafn félagsins en þar er að finna nokkur albúm[ 1 | 2 | 3 | 4 | 5 ] frá síðustu vikum.